Netafritun
Öryggi og áreiðanleiki
Tölvumiðlun býður afritunarlausnir þar sem afrit er tekið af netþjónum, gagnagrunnsþjónum og útstöðvum sé þess óskað. Afritunin er framkvæmd yfir vefinn með öruggum hætti og er reglulegt eftirlit með afritatökunni.
Afritun gagna
Þegar afritunartaka hefst í fyrsta skipti er öllum gögnum, sem skilgreint er að eigi að afrita, þjappað hjá viðskiptavini og þau send yfir vefinn til Tölvumiðlunar. Upp frá því eru einungis breytingar afritaðar og viðbætur við gögn viðskiptavinar.
Skrá sem hefur verið afrituð og viðskiptavinur hefur eytt af skráarsvæði er engu að síður geymd í skilgreindan tíma sem sjálfgefið er að sé eitt ár frá því að henni er eytt.
Sjálfgefið er, að af hverri afritaðri skrá verði geymd þrjú eintök/útgáfur við breytingar á henni.
Mögulegt er að semja um aðra tímalengd og útgáfufjölda á þeim skrám sem afritaðar eru, en breytingar á þessum liðum hafa bein áhrif á það gagnamagn sem geymt er og gjaldfært er.
Aðgengi að gögnum
Viðskiptavinur getur með einföldum hætti, hvenær sem er, sótt skrár sem hefur verið eytt eða hafa breyst. Viðskiptavinur getur einnig óskað eftir því að starfsfólk Tölvumiðlunar sæki viðeigandi skrár og setji á sama stað og upprunalega skráin var á eða á annan tilgreindan stað. Þessi þjónusta er reikningsfærð.
Gagnaleynd
Öll gögn eru dulkóðuð áður en afrit af þeim eru send til Tölvumiðlunar. Einungis þeir aðilar sem hafa dulkóðunarlykil geta sótt gögnin aftur.
Tvær staðsetningar
Dulkóðuð gögn viðskiptavinar eru geymd á afritunarmiðlum Tölvumiðlunar. Gögnin eru tvöfölduð þaðan yfir á aðra afritunarmiðla í annarri gagnamiðstöð sem staðsett er í Reykjavík.
Sjálfvirkni
Eftir að grunnuppsetningu á afritunarhugbúnaði er lokið og fyrsta afritunartaka hefur farið fram, sér afritunarþjónusta Tölvumiðlunar um að keyra afritatökuna með sjálfvirkum hætti. Skilgreindur tengiliður hjá viðskiptavini, sem ber ábyrgð á afritun, fær senda tölvupósta um hvernig afritunin gekk.
Reglulegt eftirlit
Sérfræðingar Tölvumiðlunar fylgjast með að afritun fari fram og hafa eftirlit með stöðu gagnasafns viðskiptavinar á hverjum tíma.