SFS verkbókhald
Skráning á vinnu starfsmanna, véla og tækja
Verkbókhald er skráning á vinnu starfsmanna og notkun véla og tækja í sjálfstæða skrá sem bókun innri vinnu og útseldrar er unnin úr. Þrjár skrár liggja til grundvallar skráningu í verkbókhald:
- Forðar - þar sem hver starfsmaður, vél eða tæki er skráð.
- Verk - þar sem hver bókunarlykill innri vinnu og viðskiptamaður sem kaupir vinnu er sjálfstæð skráning.
- Verðskrá - en þar eru einingaverð skráð.
Verkskráning
Starfsmaður skráir vinnu sína eða hún er skráð samkvæmt vinnuskýrslu hans, svo sem unnir tímar, orlof, veikindi, helgidagar og þeir tímar sem starfsmaður er verklaus. Einnig er skráð sala á vélum eða tækjum. Í skráningarmyndinni er hægt að prenta vinnuskýrslur til afstemmingar. Einnig er greiningarflipi til staðar, en þar sést samandregin skráning á mann, vél eða tæki.
Færslur eru fluttar eftir tímabili í Pantanir ef um útselda vinnu er að ræða annars eru þær fluttar í Verkfærslur.
Verkfærslur
Hér eru færslurnar komnar í færslubók verkbókhalds, afstemmdar og uppfærðar.
Fyrirspurnir
Mögulegt er að skoða verkfærslur í töflu þar sem notandi velur dálka í skjámyndina og raðar eftir þörfum. Hægt er að opna eða vista töfluna í Excel og vinna með hana þar.