Enter Title

SFS lánakerfi

Með öll lán á hreinu!



Í lánakerfið eru öll lán skráð hvort heldur er um að ræða skuldir eða eignir.  Í lánakerfinu er haldið utan um öll lán og þau uppfærð hvort sem um gengistryggingu eða lánavísitölu er að ræða.  Ávallt er hægt að skoða stöðu einstakra lána, gera áætlun um greiðslu þeirra og greiðsludreifingu.  Greiðslur eru skráðar í kerfinu og síðan bókaðar.

Hægt er að ná fram umtalsverðum sparnaði með notkun lánakerfisins auk þess sem yfirsýn yfir lánamál sveitarfélagsins verður mun betri.


  • Góð yfirsýn yfir veitt og tekin lán 
  • Greiðsluáætlanir sem sýna hvaða greiðslur falla til í hverjum mánuði
  • Sparar tíma! Nákvæm staða alltaf til í skýrslu
  • Sparar peninga! Ekki lengur nauðsynlegt að kaupa útreikninga af endurskoðendum; engar handfærslur
  • Hægt er að setja upp skuggalán til að sjá útreikning á hugsanlegum lántökum
  • Upplýsingagjöf til yfirvalda og stjórnenda er leikur einn!

Lánaskrá

Þar kemur fram listi yfir öll lán sem hafa verið skráð í kerfið.  Þar eru skráðar allar upplýsingar um lánið s.s. númer, fjöldi afborgana, verðbótaregla og vaxtaprósenta ásamt öllum öðrum upplýsingum sem fram koma um lánið.
 
Í afgreiðslu eru afborganir skráðar og aukaafborganir er hægt að skrá sérstaklega og reiknar kerfið þá lánið útfrá því.
 
Fjölmargar skýrslur fylgja lánakerfinu þar sem mögulegt er að skoða t.d. Yfirlit lána, afborganir, stöður og greiðsluáætlanir.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream