Enter Title

SFS gjaldkeri

Allar greiðslufærslur á einum stað



Í gjaldkerahlutann fara allar greiðslufærslur í SFS hvort heldur er um að ræða innheimtur eða færslur úr lánadrottnakerfinu.  Gjaldkeri býr til allar greiðslufærslur eða tekur við þeim frá öðrum s.s. bönkum, kortafærslum eða Intrum.  Afgreiðslan felst í því að ráðstafa þessum færslum í rétta sjóði.  Færslurnar eru reglulega sóttar um bankalínu og bókaðar vélrænt í kerfinu.  Áfallnir vextir og kostnaður bókast einnig vélrænt og eins fjármagnstekjuskattur.


Gjaldkeri getur breytt fjárhæðum ef aðeins á að greiða hluta reiknings eða innborgun á reikning hefur átt sér stað, allt þar til kvittun er skrifuð eða færsla send í banka. 


Einnig er mögulegt að bóka kostnað handvirkt, t.d. ef farið er með greiðslugögn í banka í stað þess að senda um bankalínu.  Gjaldkeri getur einnig greitt færslur utan kerfa, þ.e. reikningar sem staðgreiddir eru við móttöku og fyrirframgreiðslur.


Afgreiðsla

Hér eru allar færslur unnar bæði innheimtur og greiðslur, skrár frá banka eru lesnar inn í færslubók, lagfærðar ef þær stemma ekki og uppfærðar. Fjárhæðum er breytt ef ekki er um fullnaðargreiðslu að ræða. Hægt er að skoða stöðu og færslur á einstaka viðskiptavin eða birgja.


Sveigjanleiki

Eins og í öllum töflum í SFS kerfinu getur notandi valið ótal dálka í skjámyndina og raðað eins og hann kýs.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream