SFS Fasteignagjöld
Með allt á hreinu - hver á að greiða hvað og fyrir hvaða eign?
Fasteignagjöld eru lesin úr Álagningarkerfi Þjóðskrár Íslands í gegnum vefþjónustu og innheimtan er í gegnum SFS. Hægt er að prenta út greiðsluseðlana úr SFS – kerfinu eða senda sem rafræna greiðslu-seðla í birtingarkerfi RB í gegnum Landsbanka Íslands.
Allar breytingar og nýjar eignir koma inn í gegn-um vefþjónusturnar í SFS og hafa áhrif á ósenda greiðsluseðla.
Kostir
- SFS fasteignagjöld er kerfi sem tekur við gögnum úr Álagningarkerfi fasteignaskrár ríkisins og býr til innheimtur úr þeim.
- Öll gögn um upphæðir og greiðendur koma úr álagningarkerfinu.
- Allar breytingar sem gerðar eru í álagningarkerfinu eru lesnar inn í SFS og hafa áhrif á ósenda greiðsluseðla.
- SFS fasteignagjöld er notað til að halda utanum hver á að greiða hvað og fyrir hvaða eign.
- Greiðsluseðlar eru sendir út úr kerfinu, hægt er að senda rafræna greiðsluseðla í gegnum fyrirtækjabanka Landsbankans.
- Greiðslur á þessum gjöldum eru lesnar inn í gjaldkerann og er þá alltaf hægt að sjá stöðu innheimtunnar í kerfinu.
- Skýrsla sýnir nákvæma stöðu hver á að greiða hvað á hverri fasteign, hversu mikið hefur verið greitt og hvað er ógreitt. Þetta er skýrsla sem fasteignasalar vilja fá til að gera upp við sölu eigna.
- Hægt er að draga saman á einn greiðsluseðil gjöld á öllum eignum sama einstaklings.
- Notandinn skilgreinir fjölda gjalddaga.