Sérlausnir
Sniðnar að þínum þörfum
Hugbúnaðargerð byggir á skilgreindum tólum, íhlutum og verkferlum sem hugbúnaðarfyrirtæki þróa samhliða nýsmíði og viðhaldi á eigin kerfum.
Tölvumiðlun býr yfir eigin þróunarumhverfi (Grunnkerfi eða TM framework) sem ný kynslóð hugbúnaðar félagsins byggir á.
Þróunarumhverfið hefur verið kynnt sem hugbúnaðarlausn og selt sem slíkt með sama hætti og hver annar viðskiptahugbúnaður.
Sérlausnir sem forritarar félagsins hafa unnið að og eru í vinnslu eru meðal annars:
Álagningakerfi fasteignagjalda
Nýtt kerfi til álagningar fasteignaskatts og þjónustugjalda var þróað í samvinnu við Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins, FMR). Kerfið annast upphafs- og breytingarálagningar allra fasteigna hérlendis auk þess að skila frá sér innheimtugögnum til innheimtuaðila s.s. bókhaldskerfa, banka og sýslumanna.
Notendur kerfisins eru starfsfólk allra sveitarfélaga auk starfsfólks Þjóðskrá Íslands.
Landskrá fasteigna
Hugbúnaður þróaður í samvinnu við Þjóðskrá Íslands sem heldur utan um gögn um allar fasteignir landsmanna. Kerfin reikna byggingakostnað, fasteignamat og brunabótamat, halda utan um eignarhald, þinglýsingar ofl. Í gagnasafninu er gríðarlegt magn upplýsinga um fasteignir, allt niður í einstaka byggingahluta s.s. tegund gólfefna og mat á gæðum þeirra fyrir hverja einingu. Kerfið er í rekstri allan sólarhringinn og er með opinn aðgang að internetinu fyrir innheimtumenn ríkisjóðs, sveitarfélög, fasteignasala og aðra notendur.
Þinglýsingakerfi dómsmálaráðuneytisins
Kerfið hefur verið þróað í samvinnu við FMR og er hluti Landskrár fasteigna. Það hefur bein samskipti við tekju- og álagningakerfi Ríkisbókhalds, sér um móttöku og dagbókarskráningu skjala til þinglýsingar, vottorðagjöf auk þinglýsinga og aflýsinga. Dæmi um skjöl eru eignaskiptayfirlýsingar, stofnskjöl lóðar, kaupsamningar, afsöl, verðbréf ofl.
Grasagarðskerfi
Verkefni sem unnið hefur verið fyrir Grasagarða Reykjavíkur. Hugbúnaðurinn annast utanumhald um allar plöntur grasagarðsins, hvaðan fræin eða græðlingarnir koma, helstu upplýsingar um tegund og æviskeið í garðinum auk staðsetningar. Merkimiðar fyrir plönturnar eru prentaðar út úr kerfinu.
Upplýsingakerfi fyrir leitarstöð Krabbameinsfélagið
Gerður var umfangsmikill samningur við Krabbameinsfélag Íslands(KÍ) um þróun og innleiðingu á upplýsingakerfi fyrir Leitarstöð KÍ. Árið 2008 náðist sá áfangi að öll skráning á rannsóknarniðurstöðum Leitarstöðvarinnar varð rafræn, þ.e. niðurstöður eru nú skráðar beint í tölvukerfi en ekki fyrst á blöð eins og áður var. Í daglegri vinnslu þarf kerfið að hafa samskipti við RIS-kerfi, sem er tengt stafrænum röntgentækjum. Þau samskipti fara fram skv. alþjóðlegum staðli, HL7, sem hefur mikla útbreiðslu í heilbrigðislausnum um allan heim.
Konur sem koma í hópleit (skimun) svara nauðsynlegum heilsufarsspurningum rafrænt eða “skref fyrir skref” á þar til gerðum snertiskjá í stað útfyllingar á pappír. Skoðunarlæknar og annað starfsfólk Leitarstöðvarinnar sjá svörin á sínu vinnusvæði kerfisins eftir því sem við á hverju sinni. Með þessu fást samræmdari og greinarbetri upplýsingar en áður. Útfærsla heilsufarsspurninganna er einstök hérlendis og hafa erlendir aðilar, sem séð hafa kerfið í virkni, haft mikinn áhuga á þessu íslenska hugviti.