Enter Title

H3 fræðsla

Utanumhald um allt fræðslustarf fyrirtækisins


 

H3 fræðsla er öflugt tól til að halda utan um námskeið, fræðslu eða aðrar uppákomur sem eiga sér stað hjá fyrirtækinu.  Þannig er hægt að halda utan um námskeið, ráðstefnur, árshátíðir eða aðra atburði þar sem þörf er á góðri skipulagningu.  Í H3 fræðslu er haldið utan um öll aðföng svo sem aðstöðu, leiðbeinendur, sýningarbúnað, mat og drykk og allt annað sem þörf er á að halda utan um varðandi atburði.  Í kerfinu eru mörg góð verkfæri til að vinna með þátttakendur og taka út skýrslur, greiningarteningar fyrir tölfræði og ýmislegt fleira.
 

Fræðsluleit

Mjög þægilegt er að finna þá starfsmenn fyrirtækisins sem hafa setið ákveðna tegund námskeiðs yfir ákveðið tímabil, en einnig er auðvelt að finna þá sem hafa ekki setið námskeið og í framhaldinu bóka þá á viðeigandi námskeið. Þannig mætti á fljótlegan hátt finna alla í söludeild sem hafa ekki farið á sölutækninámskeið á síðastliðnum 6 mánuðum og bóka á slíkt námskeið.
 

Margvíslegar upplýsingar á mismunandi formi

Einfalt er að fletta upp starfsmönnum og þeim atburðum sem þeir hafa setið, einnig má prenta út fræðsluferil starfsmanns og afhenda honum þegar hann lætur af störfum. Kerfið sýnir einnig fræðslu eftir deildum og þannig geta stjórnendur fengið upplýsingar um alla fræðslu sem starfsmenn þeirra hafa fengið síðastliðinn mánuð, hálft ár og svo framvegis. Taka má út þátttöku- eða mætingalista sem nýtast til að staðfesta mætingu á námskeið.
 

Greiningarteningur

Með kerfinu fylgja öflugir greiningarteningar þar sem hægt er að skoða t.d. hvernig kostnaður dreifist á mismunandi deildir innan fyrirtækis, leiðbeinendur og annað það sem skráð er inn í kerfið. Hægt er að skoða hvernig fræðslustundir dreifast á milli deilda og jafnvel skoða fjölda fræðslustunda á móti stöðugildum og þannig fá upp hlutfall fræðslu sem má bera saman milli deilda eða sviða. Ýmsar aðrar gagnlegar upplýsingar er hægt að skoða í gegnum greiningartening H3 fræðslu.
 

Vefskráning

H3 fræðsla er samþætt við H3 starfsmenn og er hægt að birta upplýsingar um atburði sem eru á döfinni á innri vef fyrirtækja (.NET user control).  Þá geta starfsmenn einnig skoðað upplýsingar um atburði og skráð sig í gegnum innri vefinn. H3 fræðsla getur einnig sent fundarboð sjálfkrafa til þeirra þátttakenda sem eru skráðir á atburð, hvort sem þátttakendur skrá sig sjálfir í gegnum vef eða eru skráðir af stjórnanda.
 

Ytri þátttakendur

H3 fræðsla getur einnig haldið utan um þátttakendur sem ekki eru starfsmenn fyrirtækisins, ef t.d. fyrirtæki heldur námskeið fyrir sína viðskiptavini. Í þeim tilvikum er hægt að leyfa viðskiptavinum að skrá sig á námskeið í gegnum vef fyrirtækis.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream