Enter Title

H3 Birgðir

Utanumhald um birgðir sem tengjast réttindaávinnslu starfsfólks



H3 birgðir annast utanumhald birgða sem tengjast úttektum starfsmanna og réttindauppsöfnunar þeirra til úttekta, s.s. vegna einkennisfatnaðar, öryggisfatnaðar oþh.


Kerfið heldur utan um birgðastöðu og samnýtir upplýsingar um starfsmenn og vinnu þeirra með tilliti til réttinda hvers og eins til úttekta, auk þess að tímasetja hvenær úttektir mega eiga sér stað.
 

Birgðastaða

Á hverjum tíma er birgðastaða ljós hvað varðar starfsmenn, s.s hlífðar- eða öryggisfatnaður, búnaður ofl.
 

Réttindakerfi

H3 birgðir býr yfir fullkomnu réttindakerfi sem heldur utan um mismunandi réttindi starfsmanna byggt á því hvaða starfi þeir gegna.
 

Upplýsingagjöf

Í kerfinu gefa skýrslur skýra mynd af úttektum yfir valinn tíma auk annarrar upplýsingavinnslu og fyrirspurna.
 

Aukaúthlutanir

Viðmót kerfisins gerir aukaúthlutanir mögulegar með einföldum hætti.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream