Enter Title

Grunnkerfi Tölvumiðlunnar

Þitt eigið umhverfi




Tölvumiðlun hefur undanfarin ár byggt allar hugbúnaðarlausnir félagsins á sama grunni með það að markmiðið að stytta þróunartíma og auka gæði lausnanna og ná þannig að skila viðskiptavinum betri lausnum á styttri tíma með lægri þróunarkostnaði.

Grunnkerfið er „hilluvara“

Sérlausnir Tölvumiðlunar byggja á sameiginlegu grunnkerfi, sem er hilluvara. Sérlausnir nota þannig sama kerfisgrunn og staðlaðar lausnir, þar sem grunnaðgerðir lausnanna eru þær sömu. Til dæmis samskipti við gagnagrunn, kerfistöflur gagnagrunns, myndun annarra gagnataflna, söguskráning, aðgangsstýringar, tæki til að hanna viðmót, úttak og samskipti út á við (vefþjónustur eða póstsendingar). 

Sérlausnin er einstök

Sérlausnin sjálf er útfærsla á þeirri virkni sem óskað er eftir, en er byggð ofan á grunnkerfið. Þannig þarf ekki að eyða tíma eða peningum í að gera grunnhlutina aftur og aftur. þeir eru til og þá má nýta og endurnýta eftir þörfum. Allar endurbætur á grunnkerfinu í framtíðinni skila sér í öll kerfi sem byggja á því,sem er mikill kostur. 

Með því að nota grunnkerfi Tölvumiðlunar er einfalt og fljótlegt að koma upp nýju kerfi og forritarar geta einbeitt sér að viðfangi og virkni nýja kerfisins, útliti þess og vinnuflæði. 

Viðhald og þjónusta grunnkerfis

Öllum nýjungum á grunnkerfi Tölvumiðlunar, sem koma frá einum tíma til annars úr smiðju Tölvumiðlunar, er dreift sjálfkrafa á öll kerfi sem byggð eru ofan á það.

Hýsing og afritun

Tölvumiðlun býður upp á að hýsa sérlausnina, afrita hana, uppfæra og sjá um öryggismál. Notendur þurfa sjálfir að kaupa og reka útstöðvar notenda. Kerfi á útstöð uppfærir sig sjálfkrafa. 

Viðhald og þjónusta sérkerfis

Eins og með öðrum afurðum Tölvumiðlunar er boðið upp á þjónustusamning. Aðaláhersla er lögð á tæknilega þjónustu, en einnig er hægt er að semja um þjónustu við viðfangsefnið sjálft. Þá komast aðilar að samkomulagi um að starfsmenn Tölvumiðlunar viðhaldi lágmarks þekkingu á viðfanginu, og þjónusti það sem slíkt. Notandi þarf þó ávallt að tryggja að viðfangsþekking sé til staðar hjá honum og starfsmönnum hans.


Einingar

Helstu þættir í grunnkerfinu eru eftirfarandi:

  • Skilgreiningar á gögnum og viðmóti.
  • Hlutverkastýrðar aðgangsstýringar sem stýra öllum aðgangi að gögnum ásamt því að stýra hvað notandi sér í viðmóti.
  • Söguskráning gagna sem tryggja rekjanleika breytinga.
  • Windows biðlari þar sem byggt er á skilgreiningum á gögnum til að teikna viðmót.
  • Snjall biðlari sem er hefðbundið windows forrit en mjög auðveldur í uppsetningu, sækir gögn yfir vefþjónustur og hentar því vel þar sem gögn eru sótt yfir internet.
  • Vefbiðlari
  • Skýrslur, fyrirspurnir og greiningarteningar
  • Vefþjónustur.
  • Uppfærslukerfi sem tryggir að hægt er að uppfæra kerfið á auðveldan hátt

Mikil reynsla er komin á þessi kerfi og eru td. H3 og SFS lausnir Tölvumiðlunar byggðar á þessum grunnkerfi en auk þess hefur umhverfið verið notað við þróun sérlausna td. fyrir Þjóðskrá Íslands, Krabbameinsfélag Íslands og fleiri ásamt því að Verkís hefur notað umhverfið til þróunar á eigin kerfum.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream