Text/HTML

Góð þjónusta

Ávallt í fyrirrúmi

 


Tölvumiðlun hefur það ávallt að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu og veita notendum stuðning í daglegri notkun kerfa félagsins.

Þjónustuvefir

Á þjónustuvefjum Tölvumiðlunar má finna fjölmargar gagnlegar upplýsingar auk handbóka fyrir kerfin. Það er nauðsynlegt að vera skráður notandi til þess að fá aðgang. Ef þú ert ekki skráður notandi getur þú sótt um aðgang að viðkomandi þjónustuvef hér að neðan.

Þjónustugátt (fjarhjálp)

Tölvumiðlun býður einnig þjónustugátt sem gerir fjarhjálp að ákjósanlegri valkosti fyrir viðskiptavini. Fjarhjálpin byggir á því að viðskiptavinir geta nú beðið ráðgjafa um aðstoð sem yfirtekur vél notandans með einfaldari hætti en áður hefur verið unnt.

Ekki er þörf á flóknum uppsetningum eða opnun eldveggja, heldur þarf viðskiptavinurinn aðeins að hafa aðgang að interneti. Það er von okkar að þessi búnaður auki gæði þjónustunnar og einfaldi þjónustu við smærri viðskiptavini. Oft getur reynst erfitt að leysa málin með símtali því greining vandamála getur verið mjög tímafrek.

Námskeið

Tölvumiðlun leggur metnað sinn í að bjóða fyrirtækjum og stofnunum fjölbreytt úrval námskeiða. Á námskeiðunum er tekið á þeim atriðum sem notendur þurfa að kunna til að fullnýta sér möguleika kerfanna. Í boði eru einkanámskeið, fyrirtækjanámskeið, grunnnámskeið og framhaldsnámskeið í flestum kerfum fyrirtækisins. 

Ráðgjöf

Sérfræðingar Tölvumiðlunnar veita ráðgjöf á sviði launa- og mannauðskerfi og sérlausna.

HTML

Vissir þú?
...Að Tölvumiðlun skoraði 4,4 á 5 punkta kvarða í þjónustukönnun fyrirtækisins 2010?

Það þýðir að um 95% viðskiptavina eru frekar eða mjög ánægðir með þjónustu okkar.



Opnunartímar


S. 545 5000

Fax. 545 5001

Tölvumiðlun er opin:
Virka daga frá kl. 09:00 – 17:00.

Lokað er hjá Tölvumiðlun 24. og 31. desember ár hvert.



Ábending / tillaga?

Tölvumiðlun leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum sem allra besta þjónustu.  Við lítum á ábendingar og tillögur sem uppsprettu að frekari árangri. Sendu okkur línu!


Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream