
Eins og fram kom á ráðstefnu Tölvumiðlunar í nóvember sl. hafa Tölvumiðlun og Microsoft gert með sér samning um að flytja H3 heildarlausnina í launa- og mannauðsmálum af Oracle yfir á Microsoft SQL gagnagrunni.
Tölvumiðlun hefur nú lokið fyrsta áfanga í þessu ferli og
afhendir OLAP teninga á SQL. Við þetta gjörbreytast möguleikar fyrirtækja varðandi framsetningu upplýsinga úr H3 og gerir viðskiptagreind aðgengilega fyrir alla.