Neyðarþjónusta er í síma 545 5000. Neyðarþjónustan er opin virka daga frá kl. 17:00 - 21:00 og um helgar og helgidaga frá kl. 11:00 - 17:00.
Föstudaginn 18. nóvember nk. heldur Tölvumiðlun ráðstefnu í Hörpunni í Reykjavík. Ráðstefnan mun standa yfir í hálfan dag frá kl. 12.45 til kl. 16:45 og verður seinni hluti ráðstefnunnar tvískiptur þar sem annarsvegar verður umfjöllun um laun, áætlanir & greiningar og hinsvegar um mannauð, ráðningar & stjórnun. Á ráðstefnunni verða kynntar fjölmargar nýjungar í lausnaúrvali Tölvumiðlunar auk fyrirlestra sem fjalla um launa- og mannauðsmál, viðskiptagreind o.fl. Lykilræðu flytur Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í mannauðsstjórnun hjá Háskóla Íslands. Að erindum loknum munum við bera fram léttar veitingar þar sem við getum spjallað saman með notalega tónlist í bakgrunni. mynd: arkitektafélag íslans, www.ai.is Ráðstefnan setur tóninn fyrir starfsemi Tölvumiðlunar næstu misseri og mikill metnaður er lagður í innihald og umgjörð hennar. Ráðstefnan er ókeypis og opin öllum viðskiptavinum og boðsgestum Tölvumiðlunar sem skrá sig.
Takmarkaður sætafjöldi... fyrstur kemur fyrstur fær.
SILFURBERG - STEFNAN, ÁHERSLUR OG STAÐAN
16:50 - 18:00 LÉTTAR VEITINGAR OG LIFANDI TÓNLIST – Kjörið tækifæri til að spjalla við ráðgjafa Tölvumiðlunar og kynnast betur lausnaúrvali félagsins og möguleikum þess.
Hér má skoða glærukynningar sem voru notaðar á ráðstefnunni. Skjölin eru á PDF formi. Til þess að opna kynningarnar þarf að smella á viðeigandi kynningu hér að neðan.
1. Opnunarræða - Daði Friðriksson, framkvæmdastjóri Tölvumiðlunar 2. Stefnan tekin áfram - Brynjar Gunnlaugsson, sviðsstjóri lausnasviðs 3. Nýjungar í hugbúnaðarumhverfinu - Viðar Þórðarson, sviðsstjóri þróunarumhverfis Tölvumiðlunar og Einar Guðsteinsson, hugbúnaðarsérfræðingur 4. Mannauðsstjórnun - Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í mannauðsstjórnun hjá Háskóla Íslands.
1. Laun - Elín Hauksdóttir, deildarstjóri hjá Tölvumiðlun 2. Viðskiptagreind - Brynjar Gunnlaugsson, sviðsstjóri lausnasviðs 3. Stýring launaáætlana - Bára Mjöll Ágústsdóttir, mannauðsstjóri hjá Samskipum 4. Mannauður - Herwig Syen, mannauðsstjóri hjá Foodco 5. Launaáætlanir - Margrét Jóna Gísladóttir, ráðgjafi
1. Mannauður - Sigurjón Atli Sigurðsson, ráðgjafi 2. Starfsmannaval - Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og rekstrar hjá Byr hf. 3. Sjálfsafgreiðsla starfsmanna - Hannes Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Verkís 4. Stjórnun - Sigurjón Atli Sigurðsson, ráðgjafi 5. Viðskiptagreind - Viðar Þórðarson, sviðsstjóri þróunarumhverfis og Brynjar Gunnlaugsson, sviðsstjóri lausnasviðs
Fleiri myndir af ráðstefnu Tölvumiðlunar má finna hér: www.facebook.com/Tolvumidlun