Viðskiptagreind
Greiningar á lifandi gögn
OLAP teningar frá Microsoft!
Tölvumiðlun býður upp á viðskiptagreind byggða á Microsoft SQL Server Analysis Services (OLAP). Greindarlausnir eða „teningar“ hafa sannað sig sem ómissandi verkfæri fyrir stjórnendur. Þeir aðstoða fólk og fyrirtæki við að vinna betur úr þeim mikla fjölda gagna sem er vistaður í upplýsingakerfum þeirra.
Með viðskiptagreind frá Tölvumiðlun má auka áhersluna á greiningu upplýsinga og túlkun þeirra. Tími og kostnaður sem fer í upplýsingaöflun og skýrslugerð minnkar til muna og auðveldar stjórnendum að taka skjótari og betri ákvarðanir sem byggja á lifandi upplýsingum. Teningar frá Tölvumiðlun veita skjótt svör við mikilvægum fyrirspurnum og jafnvel við nýjum spurningum sem vakna í kjölfarið.
H3 greiningar vs. H3 viðskiptagreind
Í H3 greiningum er hægt að útbúa lifandi skýrslur innan H3 kerfa sem svara afmörkuðum fyrirspurnum, s.s. um kostnað eftir launaliðum eða launakostnað eftir deildum fyrir ákveðið tímabil. Þessar skýrslur uppfylla þó ekki alltaf upplýsingaþörf nútíma stjórnenda. Nútíma stjórnendur óska eftir gagnvirku skýrslugerðartóli sem opnar möguleikann á margvíðri greiningu gagna úr viðskiptakerfum og birtingu út fyrir H3. Þessari þörf er svarað með H3 viðskiptagreind.
Ertu þegar að nota H3 greiningar eða H3 áætlun?
Allir viðskiptavinir sem eru með þjónustu- og uppfærslusamning um H3 greiningar og / eða H3 áætlun geta fengið uppsetta teninga á SQL gagnagrunni og nýtt sér nýjustu tækni sem í boði er. Enn og aftur býður Tölvumiðlun nýjar kynslóðir lausna sem hlut af þjónustu- og uppfærslusamningi. Hafðu samband og þá setjum við af stað vinnu við að skoða leyfismál á Microsoft SQL grunni hjá þér, stillum af teninga og innleiðum hratt og örugglega.
Greiningar á lifandi gögnum
Með H3 viðskiptagreind geta notendur búið til greiningar á lifandi gögnum með því að draga inn víddir og mælieiningar úr H3 og önnur upplýsingakerfi frá mismunandi sjónarhornum. Með því að bora niður í gögnin er hægt að leiða fram mælikvarða sem aðstoða við ákvörðunartöku. Jafnframt verður mögulegt að framkvæma spár og næmnigreiningar til að sjá fyrir mögulegar sviðsmyndir. Einnig er hægt að vista uppsetningar þannig að skýrslan uppfærir sig með nýjustu tölur hvert skipti sem hún opnast.
Staðlaðar greiningar og sérlausnir
Tölvumiðlun býður upp á staðlaðar greiningar eða teninga sem virka strax. Hér má nefna:
- Launateningur
- Áætlanateningur
- Starfsmannaveltunarteningur (í vinnslu)
- Mannauðsteningur (í vinnslu)
- Fræðsluteningur (í vinnslu)
- Ráðningateningur (í vinnslu)
Ráðgjafar Tölvumiðlunar þekkja tækniumhverfið mjög vel og geta útbúið eiginlega hvaða teninga sem er ofan á upplýsingakerfi viðskiptavina.
Mælaborð stjórnandans
Stjórnendur hafa möguleika á því að draga skýrslur úr teningum inn í stjórnborðið sitt sem sýnir þá t.d. áætlaðan launakostnað á móti raunkostnaði fyrir viðkomandi deild fyrir ákveðin tímabíl. Þá er boðið upp á samtengingu teninga t.d. þegar mannauðsstjórar vilja sjá hvort að sölumenn sem hafa hlotið ákveðna þjálfun selja meira en kollegar þeirra sem ekki hafa fengið þessa þjálfun.