Hýsingarlausnir
Meira rekstraröryggi
Tölvumiðlun býður viðskiptavinum sínum hýsingarlausnir sem eru mismunandi eftir þörfum hvers og eins fyrirtækis. Hugbúnaður og vélbúnaður er hýstur í öruggu rými sem er kælt til að viðhalda réttu hitastigi.
Valmöguleikar eru nokkrir og meðal annars:
- Hýsing á öllum hugbúnaði, þar sem viðskiptavinur fær aðgang að þeim kerfum (t.d. SFS, H3 og Microsoft Office) sem hann hefur þörf fyrir og eru til staðar í upplýsingakerfi viðskiptavinar.
- Hýsing á hluta af hugbúnaði. Hluti hugbúnaðar er hýstur hjá Tölvumiðlun en önnur kerfi eru staðsett hjá viðskiptavini.
- Hýsing á léni. Viðskiptavinir geta hýst vef sinn í öruggu umhverfi Tölvumiðlunar.
- Hýsing á gagnagrunnum. Um hýsingu er að ræða á Oracle og/eða MSSQL gagnagrunnum sem hin ýmsu kerfi tengjast við vinnslu sína.
Kostir
- Dregið er úr þörf á fjárfestingu í vélbúnaði og reglulegri endurnýjun sama búnaðar.
- Viðskiptavinir einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni því búnaðurinn er í öruggri vörslu allan sólarhringinn.
- Afritun gagna er framkvæmd hjá Tölvumiðlun.