SFS höfn
Skráning á innheimtum vegna hafna
Höfn
Höfn er sérstök kerfiseining í SFS sem heldur utanum reikningagerð vegna hafnarstarfsemi, þ.e. selt rafmagn, vatn, hafnargjöld og annað sem þarf að innheimta hjá útgerðum. Allir reikningar eru bókaðir á viðskiptamann, virðisaukaskattur færður eins og við á, reikningar og greiðsluseðlar verða til, hægt að stofna kröfur rafrænt í banka og lesa inn greiðsluskrár til baka.
Hafnarkerfið er önnur útfærsla á verkbókhaldinu í SFS sem margir notendur þekkja og skilar á sama hátt og verkbókhaldið færslum inn í reikningahluta kerfisins.
Hjá flestum sveitarfélögum er hafnarkerfið notað þannig að hafnarstjóri eða annar starfsmaður hafnarinnar sér um að skrá inn í kerfið allt sem á að innheimta. Það er síðan misjafnt hvort sá starfsmaður heldur áfram með vinnsluna, þ.e. býr til pantanir og uppfærir í reikninga eða hvort annar starfsmaður tekur við.
Verk
Hver bátur er stofnaður sem verk inni í Hafnareiningunni og allar færslur eru skráðar beint á það. Þetta tryggir að útgerð sem er með marga báta fær reikningana sundurliðaða fyrir hvern og einn.
Hafnarskráning
Skráðar eru færslur á hvern bát fyrir sig, hægt er að skrá einstaka daga eða heilan mánuð í einu, allt eftir því hvað hentar á hverjum stað. Hægt er að skrá jafnóðum inn í kerfið en safna upp öllum skráningum mánaðarins og uppfæra í einu lagi þegar öllum skráningum mánaðarins er lokið.
Skoða/bakfæra
Eins og aðra reikninga sem búnir eru til í kerfinu er hægt að skoða alla reikninga og bakfæra þá í sérstakri valmynd. Þegar reikningur er bakfærður eru hafnarskráningarnar opnaðar til lagfæringar eða eyðingar.
Fyrirspurnir
Í hafnarkerfinu eru 2 fyrirspurnir. Önnur þeirra sýnir allt sem hefur verið bókað á fyrirtækið Höfn á völdu ári en hin sýnir stöðu og færslur á einstaka viðskiptamenn.
Skýrslur
Aðalbók, Aðalbókarhreyfingar og hreyfingar viðskiptamanna eru allt skýrslur sem eru í hafnarkerfinu en eru einnig til annars staðar í kerfinu.
Höfn-skráning er skýrsla sem sýnir allt sem hefur verið skráð inn í hafnarkerfið og er óuppfært þegar skýrslan er tekin út. Þessi skýrsla er mjög góð til að yfirfara skráningarnar áður en gerðir eru reikningar.
Sérstakir greiðsluseðlar eru fyrir höfnina þar sem nafn bátsins kemur fram. Einnig eru þarna skýrslurnar Fylgiskjal greiðsluseðla og Reikningar-form sem notendur þekkja úr reikningahluta kerfisins.
Innheimta krafna
Kröfur eru sendar í banka eða til kortafyrirtækja til innheimtu á hefðbundinn hátt, þ.e. í Reikningar-Úttak-Innheimta krafna.