H3 vefþjónustur
Nýttu þér upplýsingar úr H3 í öðrum kerfum
H3 vefþjónustur er tól sem leyfir öðrum kerfum að nýta sér upplýsingar sem eru til staðar í H3. Þannig má gefa innri og/eða ytri vefjum fyrirtækja aðgang að starfsmannalistum sem uppfærast sjálfkrafa.
Tímasparnaður, minni villuhætta
Í flestum tilvikum er „réttasti“ starfsmannalisti fyrirtækisins sá sem launin eru greidd eftir og því er augljós ávinningur að nýta sér þann lista alls staðar þar sem starfsmannaupplýsinga er þörf. Með H3 vefþjónustum má leyfa öðrum kerfum (vefjum, tíma- og viðveruskráningarkerfum, starfsmannagáttum og fleira) að nálgast starfsmannaupplýsingar beint í H3 starfsmannagrunninn. Hægt er að veita aðgang að öllum upplýsingum sem er að finna í H3. Þannig hverfur þörfin fyrir að viðhalda mörgum listum hingað og þangað í hvert sinn sem starfsmaður byrjar, hættir, fer í orlof eða færist til í starfi.
Símaskrár
Margir viðskiptavina Tölvumiðlunar nýta sér H3 vefþjónustur til að sækja símaskrárupplýsingar sem birtar eru á innri og/eða ytri vefjum fyrirtækjanna. Auk hefðbundinna símaskrárupplýsinga má til dæmis sækja myndir starfsmanna og birta á vef, allar upplýsingarnar eru geymdar í H3 gagnagrunninum og sóttar þangað. Um leið og nýr starfsmaður hefur störf, er hann stofnaður í launakerfinu og birtist þá sjálfkrafa í símaskrá á vef og annars staðar þar sem slíkra upplýsinga er óskað.
Ekkert undanskilið
Eins og áður sagði er hægt að nálgast hvaða upplýsingar sem er í H3 í gegnum vefþjónusturnar. Þannig mætti jafnvel gera launaseðla aðgengilega starfsmönnum, trúnaðaryfirlýsingar eða önnur skjöl sem vistuð eru í H3. Hægt er að heimila öðrum kerfum að uppfæra upplýsingar í H3. Dæmi um það er t.d. að þegar starfsmaður er stofnaður er hann fluttur í Active Directory og þaðan er síðan netfangið flutt yfir í H3.
Öruggt
Þó hægt sé að nálgast mikið magn upplýsinga um starfsmenn í gegnum H3 vefþjónusturnar skal tekið skýrt fram að fyllsta öryggis er gætt í meðhöndlun og aðgangi að gögnum. Ávallt er tryggt að eingöngu er gefinn aðgangur að þeim upplýsingum sem óskað er eftir og eingöngu til þeirra aðila sem hafa heimildir til að sjá viðkomandi upplýsingar.