Enter Title

H3 starfmenn

Sjálfsafgreiðsla starfsfólks


 

H3 starfsmenn gerir starfsmönnum kleyft að skoða og skrá þær upplýsingar um sig sem fyrirtækið vill veita viðkomandi starfsmanni aðgang að.  Tölvumiðlun hefur nýlega gefið út nýjan biðlara sem notaður er fyrir H3 starfsmenn.

Live Tabs

 

Aðgengi að upplýsingum allra eininga H3

Þannig getur starfsmaður til dæmis skráð menntun, fyrri störf, og þekkingu svo sem tungumálakunnáttu, nánustu aðstandendur og fleira sem er vistað í H3 mannauð. Þá getur starfsmaður skoðað orlofsstöðu og önnur uppsöfnuð réttindi í H3 laun. Einnig getur starfsmaður skoðað námskeið sem viðkomandi hefur sótt í H3 fræðsla.
 

Starfsþróunarsamtöl

Starfsmaður getur fengið aðgang að undirbúningseyðublöðum fyrir starfsþróunarsamtöl í H3 starfsmenn.  Stjórnandi fær einnig aðgang að sínum undirbúningseyðublöðum í H3 stjórnandi og fyllir út þar. Starfsmannahald getur þá haft yfirumsjón og eftirlit með framgangi starfsmannasamtala og unnið úr niðurstöðum.  Aðgang hvers og eins notanda er hægt að stilla mjög ítarlega þannig að eingöngu er gefinn aðgangur að því sem viðkomandi má sjá.
 

Markmið og verkefni

Í tengslum við starfsþróunarsamtöl eru sett niður markmið og verkefni.  Starfsmaður getur sett sér markmið að auka þekkingu á ákveðnu sviði og stjórnandi skráð verkefni sem fælist í að endurnýja búnað starfsmanns. 

Stjórnendur, starfsmannahald, starfsmenn eða umsjónaraðilar geta fylgst með hvort markmiðum sé náð eða verkefnum lokið á tilsettum tíma og hvort kostnaðaráætlun hafi staðist.
 

Sjálfsafgreiðsla - tímasparnaður

Öll sjálfsafgreiðsla starfsmanna minnkar álag á starfsmannahald og eykur upplýsingagjöf til starfsmanna. Þá felst mikil hagræðing í að starfsmenn geti sjálfir viðhaldið ákveðnum upplýsingum enda starfsmenn oft sjálfir með bestu og ýtarlegustu upplýsingarnar.
 

Ný tækni

Í H3 starfsmenn er notast við nýjan biðlara (e. client) sem kallast H3+ og er notast við.NET Smart Client tækni. Uppsetning kerfisins er mjög einföld. Notandinn þarf einungis að smella á hlekk sem getur verið staðsettur á innri vef eða sendur í tölvupósti, kerfið setur sig sjálft upp (ekki krafist „administrator“ réttinda) og er tilbúið til notkunar. Kerfið uppfærir sig sjálft þegar þess er þörf og gerir litlar kröfur til bandvíddar eða vélbúnaðar.
 

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream