
Utanumhald um mannauð frá ráðningu til starfsloka
H3 mannauðskerfi auk annarra eininga styðja allt ferli mannauðsstjórnunar, frá umsókn til starfsloka.
Kerfið er algjörlega samhæft við aðrar H3 einingar og gerir fyrirtækjum kleyft að stunda mannauðsstjórnun með það m.a. að markmiði að sameina upplýsingar um starfsfólk á einn stað og auðvelda aðgengi að þeim, bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.
Starfsmannaupplýsingar
Haldið er utan um allar helstu upplýsingar um starfsmann á einum stað. Um leið og upplýsingar hafa verið skráðar í kerfið eru þær orðnar aðgengilegar öllum sem á þurfa að halda, hvort sem er yfirstjórn, millistjórnendum eða starfsmönnum.
Sé starfsmönnum veittur aðgangur gegnum H3 starfsmenn getur starfsfólk sjálft viðhaldið ákveðnum upplýsingum og þannig minnkað álag á starfsmannahald.
Þá getur kerfið sjálfkrafa uppfært upplýsingar, svo sem á ytri vef, með H3 vefþjónustum. Þannig sparast vinna og villuhætta minnkar.
Upplýsingar til allra sem þurfa
Eins og áður sagði má veita stjórnendum og starfsmönnum aðgang til að skoða eða skrá þær upplýsingar þar sem við á. Þannig sér stjórnandi samstundis menntunarupplýsingar sem starfsmaður skráir.
Aðgengi stjórnenda er í gegnum H3 stjórnun en aðgengi starfsmanna er í gegnum H3 starfsmenn. Nýr biðlari er notaður fyrir starfsmenn og stjórnendur en þar er nýtt nýjasta tækni .Net Smart Client.
Meðal þess sem H3 mannauður veitir aðgang að er:
Skjalaskápur
í H3 er rafrænn skjalaskápur sem heldur utan um öll skjöl sem tengjast starfsmönnum. Þannig má halda utan um ráðningarsamninga, skönnuð skjöl, vottorð, myndir eða önnur skjöl á einum stað þar sem fljótlegt er að nálgast þau. Engin þörf er fyrir hillumetra af möppum í læstum skápum því allt er geymt í öruggum gagnagrunni þar sem þeir sem þess þurfa geta nálgast skjölin. Kerfið gerir notanda einnig kleyft að sjá hverja vantar ráðningasamninga eða hverjir eru með gamlar trúnaðaryfirlýsingar.
Forsniðin skjöl
Tól sem leyfir notendum að útbúa word skjöl þar sem kerfið fyllir starfsmannaupplýsingar út fyrir notandann. Þannig sparast heilmikil vinna og villuhætta minnkar, til dæmis við gerð ráðningasamninga og annarra skjala. Þannig má útbúa ráðningasamning tilbúinn til undirritunar á örfáum sekúndum.
Hlutir í vörslu
Haldið er utan um öll verðmæti sem starfsmaður hefur í sinni vörslu frá vinnuveitandanum. Þannig er kominn gátlisti til að fara yfir þegar starfsmaður lætur af störfum. Einnig má á einfaldan hátt komast að því hver hefur lykil að ákveðinni byggingu, hefur tölvu af ákveðinni tegund og fleira. Umsjónaraðilar með ákveðnum tegundum hluta t.d. símum, geta haldið utan um allar upplýsingar um símana en til viðbótar er hægt að halda utan um samninga o.fl. tengt hlutnum.
Fræðsla
Skráning á öllum námskeiðum, ráðstefnum og annarri fræðslu sem starfsmaður hefur sótt, ásamt upplýsingum um kostnað.
Eyðublöð
Notað til að halda utan um starfsmannasamtöl (starfsþróunarsamtöl) eða útbúa sérhæfðar skráningarmyndir um hvað sem er. Mögulegt er að gera eyðublöð aðgengileg stjórnendum og starfsmönnum. Einfalt að fylgjast með framgangi starfsþróunarsamtala eða vinna úr niðurstöðum þeirra.
Skírteini
Öflugt utanumhald utan um öll réttindi sem starfsmenn þurfa að hafa til að sinna sínu starfi svo sem vinnuvélaréttindi, vottun eða löggildingu. Hægt að láta skírteini uppfærast sjálfvirkt við setu á námskeiðum í H3 fræðslu.
Aðstandendur
Upplýsingar um aðstandendur starfsmanna, hverja skal hafa samband við ef slys verður.
Ferilskrá
Ítarleg ferilskrá með öllum helstu upplýsingum um starfsmann, hvaða menntun hann hefur, námskeið sem hafa verið sótt, tungumálakunnátta, greinaskrif, fagfélög, helstu verkefni sem viðkomandi hefur tekið þátt í, og fleira. Hægt að prenta út eftir mismunandi forsniðum og á öllum tungumálum. Ferilsskrár eru hentugar fyrir fyrirtæki í tilboðsgerð.
Starfsgreining
Heldur utan um hvaða kröfur fyrirtækið gerir til starfsmanna og hvort starfsmenn uppfylli þær gagnvart fyrirtækinu. Einnig hvort fyrirtækið uppfylli kröfur gagnvart starfsmanni, til dæmis hvort búið sé að afhenda starfsmanni aðgangskort. Skortur á báða bóga er verkefni sem þarf að vinna. Hægt er að stilla kröfur á fyrirtækið í heild, einstaka deildir, einstaka starfsheiti, einstaka starfsmenn og svo framvegis.
Greiningarteningar
H3 mannauður býr yfir greiningarteningum sem gera samanburð og greiningu gagna að leik einum. Mögulegt er að velta gögnum fram og til baka og breyta þannig ásýnd gagnanna á svipstundu. Þannig má sjá hversu margir hafa háskólamenntun, hversu mörg skírteini renna út í næsta mánuði, hve margir farsímar eru í ákveðinni deild og ýmislegt fleira.
Skýrslur
Ýmsar staðlaðar skýrslur er hægt að prenta út úr kerfinu, eins og afmælisdagalista, starfsaldursafmælislista, límmiða fyrir umslög, kvittanir fyrir hlutum í vörslu og fleira.