Enter Title

H3 laun

Eitt útbreiddasta launakerfi á Íslandi

Live Tabs

Traust kerfi í 26 ár

H3 laun er eitt útbreiddasta launakerfi landsins.  Kerfið byggir á fremstu tækni sem völ er á.  Engin takmörk eru fyrir launþegafjölda þeirra fyrirtækja eða sveitarfélaga sem nýta kerfið.  Við þróun kerfisins var tekið mið af áratugalangri reynslu Tölvumiðlunar af íslenskri launavinnslu og íslensku umhverfi og það skilar sér í notendavænt og þægilegt forrit sem er auðvelt í notkun.

H3 laun hentar jafn fyrir starfsmenn á tímakaupi og mánaðarlaunum.  Kerfið hentar fyrirtækjum af öllum stærðum. Hægt er að hafa fleiri en eitt fyrirtæki í kerfinu.

Notendavænt og þægilegt

Öll virkni launakerfisins miðar að því að auðvelda launavinnsluna og auka yfirsýn yfir launakostnað og starfsmannaupplýsingar.

H3 laun tekur á móti tíma- og launafærslum frá viðverukerfum og skilar bókhaldsfærslum til allra bókhaldskerfa.  Einnig getur H3 skilað upplýsingum og skýrslum á innri/ytri vefsíður eða í Excel til greiningar, áætlana og myndrænna framsetninga.

Helstu kostir
  • Hentar fyrirtækjum af öllum stærðum.
  • Hægt að reikna í sömu útborgun laun sem tilheyrir tveimur mánuðum (t.d. eftirá yfirvinnu og föst laun greitt fyrirfram). Skilagreinar, staðgreiðslu og launatengd gjöld skiptast á tvö tímabil.
  • Gagnagrunnsdrifið kerfi .
  • Einfalt í uppsetningu (Notandinn getur fengið kerfið sett upp hjá sér eða hýst það hjá Tölvumiðlun).
  • Öflugar aðgangsstýringar gera mögulegt að skipta verkefnum á milli stafsmanna og veita stjórnendum aðgang að launagögnum undirmanna sinna.
  • Uppgjör starfsmanna við starfslok með einum músasmelli.
  • Kerfið býr yfir fullkomnu réttindakerfi sem tekur á öllum réttindaávinnslum, úttektum og stöðu á hverjum tíma, svo sem orlofi, hvíldartímum, desemberuppbót og öllum öðrum réttindum eða söfnun sem á sér stað hjá starfsmanni. 
  • Innlestrarskrár til bókhaldskerfa
  • Í kerfinu er niðurbrot færslna með þeim hætti að hægt er að láta færslur í bókhald brotna niður á t.d. svið, deild, verk, verkþátt, starfsstétt og starfsheiti.
  • Launaframtal, sundurliðun á stofni tryggingagjalds niður á mánuði.
  • Rafræn skil á staðgreiðslu, launatengdum gjöldum og launamiðum.
  • Innlestur úr viðverukerfum. 
  • Fjöldi skýrslna og  greiningamöguleikar óháð áramótum.
  • Launaseðill þarfnast ekki forprentaðra eyðublaða heldur er keyrður út á t.d  bréfsefni fyrirtækisins eða birtur í heimabanka starfsmanna.
Einfalt í allri notkun

Það er auðvelt að nálgast allar launaupplýsingar, skilagreinar eru rafrænar og launakeyrslan er söguskráð.

Orlofshækkanir tengdar starfsaldri eða lífaldri og vottorð vinnuveitanda gefin út með einum smelli. Auðvelt er að lesa inn skráningarfærslur viðverukerfa, ýmist í gegnum vefþjónustur eða úr textaskrám.  Við bjóðum einnig sérhannað excelskjal til innlestrar á launum, frádrætti og réttindum.

Öflugt niðurbrot færslna

Í kerfinu er niðurbrot færslna með þeim hætti að launakostnaður og færslur í bókhald brotna m.a. niður á svið, deild, verk, verkþátt, starfsstétt, starfsheiti o.fl.  

Áramótastaða eldri launaseðla

Við endurprentun eldri launaseðla birtist áramótastaða launa eins og hún var á viðkomandi seðli.

Skilagreinar með einum hnappi

Flokkun á færslum eftir mánuðum. Allar launa- og kostnaðarfærslur eru merktar réttum mánuði og því er aðeins valinn mánuður þegar sendar eru skilagreinar þó um sé að ræða margar útborganir eða hluta úr útborgunum (fyrirfram eða eftirágreiddir). Þetta gerir það að verkum að aðeins þarf að smella á einn hnapp til að skila öllum skilagreinum, óháð því hvort prenta á skilagreinar eða senda þær rafrænt.  Launaframtal er prentað út úr kerfinu með þeirri sundurliðun sem RSK krefst.
 

Réttindaávinnsla

Kerfið býr yfir fullkomnu réttindakerfi sem tekur á öllum réttindaávinnslum, úttektum og stöðu á hverjum tíma, svo sem orlofi, hvíldartímum, desemberuppbót og öllum öðrum réttindum eða söfnun sem á sér stað hjá starfsmanni. Til að flytja réttindauppgjör starfsmanns í útborgun þarf aðeins að smella á einn hnapp.
 

Flutningur í bókhald

Flutningur í bókhald hefur fjölmarga valkosti. Mögulegt er að færa kostnað vegna réttindaskuldbindinga s.s. vegna orlofs. Færslur gjalda s.s. lífeyrissjóða og stéttarfélaga eru færðar með gjalddaga, til þæginda fyrir gjaldkera við greiðslu skilagreina.
 

Sveigjanleiki

Sveigjanleiki er innbyggður í högun reikniverksins, sem er allt töfludrifið og því auðvelt að breyta útreikningi. Kerfið reiknar og geymir útreikning niður í smæstu einingar. Í launaseðlum, skýrslum, viðmóti og vinnslum eru gögnin dregin saman.
 

Eldri gögn gerð aðgengileg við uppfærslu

Hægt er að flytja öll gögn úr H-Laun 2x yfir í H3 laun og er aðgangur því tryggður að eldri gögnum og sögu hvers starfsmanns sem gerir það mögulegt að birta skýrslur um launabreytingar og launakostnað frá upphafi.
 

Skýrslur og fyrirspurnir

Fjölmargar skýrslur eru til staðar auk fyrirspurna.  Fyrirspurnir eru fluttar með einföldum hætti yfir í Excel og skýrslur teknar út t.d. með PDF sem hægt er að senda beint úr kerfinu með tölvupósti.
 

Innbyggðir ferlar

Kerfið býr yfir innbyggðum ferlum sem leiða notendur áfram við aðgerðir sem sjaldan eru framkvæmdar t.d. hækkun á orlofsprósentu og greiðslu orlofs- og desemberuppbótar
 

Verkefnalistar

Notendur geta haldið utan um og tímasett verk.  Hægt er að hengja viðhengi á verkefnin tölvupósta, innskönnuð skjöl og önnur skjöl.

H3 laun í hýsingu hjá Tölvumiðlun hentar flestum fyrirtækjum sem annast hefðbundna launavinnslu fyrir allt að 100 starfsmenn.  Fyrir stærri fyrirtæki með marga notendur getur uppsetning á H3 laun í eigin umhverfi verið hagkvæmari.

Kostir við hýsingu hjá Tölvumiðlun
  • Í hýsingu liggja gögnin hjá Tölvumiðlun og eru afrituð reglulega með fullkomnustu tækni.
  • Aðgengi hvaðan sem er, hvenær sem er
  • Launagögn eru varin fyrir öllum aðilum sem ekki mega komast í þau en oft er erfitt að verja gögn fyrir tæknifólki sem og öðrum aðilum.
  • Í hýsingarumhverfi Tölvumiðlunar er tryggt að launagögn eru aðeins aðgengileg þeim sem til þess hafa heimild.
  • Hreyfanleiki: ekki þarf að flytja kerfið þegar fyrirtækið flytur eða endurnýjar tölvubúnað, hægt að komast að gögnunum þaðan sem þörfin er á hverjum tíma.
  • Meira öryggi – góðar aðgangsstýringar.
  • Aukin þjónusta. Nýjar útgáfur eru settar inn af starfsmönnum Tölvumiðlunar og grunntöflur s.s. skatthlutföll, bankar og póstnúmer eru í okkar umsjá.

Hvað kostar að uppfæra í H3 laun í hýsingu?
  • H-Laun notendur fá  H3 Laun í hýsingu án stofngjalds.  Aðeins er greitt fyrir vinnu við uppsetningu kerfisins, en sú vinna er í lágmarki.
  • H3 laun notendur hafa kost á því að koma í hýsingu þegar þeim hentar.
H3 laun - notendaviðmót



H3 laun - OLAP launateningur sem opnast í Excel

Text/HTML

Vissir þú?
... Að Tölvumiðlun er með útbreiddasta launakerfi Íslands? Um 75.000 launþegar fá borgað í gegnum H3 laun í hverjum mánuði.


 

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream