Enter Title

H3 greiningar

Bylting í meðhöndlun og úrvinnslu launagagna



H3 greiningar er bylting í meðhöndlun og úrvinnslu launagagna. Greiningar eru framkvæmdar í teningi sem gerir kleyft að velta gögnum fram og til baka og breyta þannig ásýnd gagnanna á svipstundu, en teningurinn er mjög hraðvirkur.

Með greiningarteningnum getur stjórnandinn fengið góða yfirsýn yfir smæstu atriði sem er mjög hentugt við áætlanagerð og eftirlit.

Live Tabs

Allt á einum stað

H3 greiningar gera stjórnendum kleyft að nálgast allar upplýsingar um launakostnað á einum stað og greina þær með einföldum hætti.

Mismunandi uppsetningar

Notendur kerfisins geta vistað eigin uppsetningar, skipt á milli uppsetninga og komið að þeim síðar við endurteknar greiningar.


Hröð vinnsla

Í allri vinnslu er teningurinn mjög hraðvirkur. Hann sækir umbeðin gögn einu sinni og síðan er þeim velt fram og til baka án þess notandinn þurfi að bíða eftir því að gögn séu sótt við hverja breytingu.

Öflugt niðurbrot

Samanburður upplýsinga um launakostnað geta t.d. verið milli tímabila, sviða, deilda, starfsstétta, starfsmanna ofl. Með auðveldum hætti er m.a. hægt að bera saman laun milli kynja í sömu starfsstétt.

Greiningar í H3 2012 fela í sér OLAP teninga. Teningarnir hjálpa okkur við að breyta gögnum í upplýsingar. Tími og kostnaður sem fer í skýrslugerð minnkar til muna og gefur stjórnendum forskot til að taka betri ákvarðanir byggðar á samsettum upplýsingum.  

Teningarnir veita svör við mikilvægum spurningum sem hingað til hefur verið erfitt að fá svör við nema með mikilli vinnu:

  • Einfalt en öflug greiningartól sem er hægt að setja fram á fjölbreyttan hátt, t.d. með Excel, Sharepoint og Targit.
  • Teningarnir eru aðgangsstýrðir í kerfisumsjón H3, þar er því stýrt hverjir sjá hvað.
  • Myndræn framsetning er einföld og fljótleg t.d. með því að nota Microsoft Excel.
  • Tölvupóstsendingar til stjórnenda verða óþarfar og gagnaöryggi eykst.

 

H3 laun - greiningar

Laun
Teningurinn er einstakt greiningar- og eftirlitstól fyrir stjórnendur til að fylgjast með þróun launamála. Hann tekur á öllum þeim spurningum sem skipta máli varðandi greiningar gagna.

Launafulltrúinn getur notað teninginn til að bera saman þá útborgun sem er í gangi hverju sinni við aðrar útborganir og greina frávik.


Starfsmannavelta

Starfsmannavelta er almennt skilgreind sem hlutfall af meðalfjölda starfsmanna sem hættu störfum á árinu. Meðalfjöldi er meðaltal fjölda starfsmanna í ársbyrjun og árslok. Tímabundnar ráðningar starfsfólks teljast almennt ekki til starfsmannaveltu.

Teningurinn sýnir á einstakan hátt hvernig starfsmannaveltan þróast frá mánuði til mánaðar.  Hægt að grafa sig ofan í einstök atriði.

H3 áætlun - greiningar

Áætlanir

Á einfaldan hátt má bera saman áætlun á móti rauntölum eftir því sem þær verða til í launakerfinu.

  • Einingar, heildarlaun, heildarlaun m/ltg ásamt fjölmörgum öðrum mælieiningum, tryggja þér þá sýn sem þú þarft.
  • Allt það niðurbrot sem þú getur hugsað þér.
  • KPI mælar (e. Key Performance Indicators) eru stillanlegir og sýna þér hvernig staðan er eftir þínum mælikvörðum.

Teningurinn svarar á augabragði mikilvægum spurningum og gefur þannig tækifæri til inngripa þar sem þeirra er þörf.

Ath: Ef þú vilt nýta þér nýja kynslóð greininga þarftu Microsoft SQL Server 2008 R2. Smelltu hér til að lesa meira.

Sýnishorn

Starfsmannavelta



Laun

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream