H3 Dagpeningar
Allt utanumhald á einum stað
H3 dagpeningar er umfangsmikil lausn sem annast utanumhald dagpeninga hjá launagreiðendum.
Kerfið er heildarlausn þar sem útreikningur dagpeninga fer fram, uppgjör og greiðslur á reikninga starfsmanna í hvaða gjaldmiðli sem er.
Dreifing álags
Eitt af markmiðum H3 heildarlausnarinnar er að mögulegt sé að dreifa vinnu vegna starfsmannamála á fleiri starfsmenn. Aðgangsstýringar kerfisins gera m.a. kleyft að tilnefndur starfsmaður annist dagpeningagreiðslur og utanumhald en hafi ekki aðgang að öðrum hlutum kerfisins.
Allt á einum stað
Með H3 dagpeningum eru allar upplýsingar um dagpeningagreiðslur á einum stað og meðal annars hægt að nálgast yfirlit yfir heildargreiðslur, fjölda ferða, hvert var farið ofl.
Gengið sótt með einum takka
Með einum takka er hægt að sækja gengi gjaldmiðla og þarf því aldrei að handskrá gengið.
Greitt í hvaða gjaldmiðli sem er
Kerfið gerir mögulegt að greiða starfsfólki dagpeninga í hvaða gjaldmiðli sem er, t.d. með innborgunum á mismunandi gjaldeyrisreikninga starfsfólks.
Dagpeningakvittun í tölvupósti
þegar dagpeningarnir eru greiddir er hægt að senda samtímis dagpeningakvittun í tölvupósti á þá starfsmenn sem eru að fá greidda dagpeninga.
Dagpeningayfirlit
Dagpeningaryfirlit er til staðar í kerfinu og auðveldar það starfsfólki utanumhald með greiðslunum og sparar vinnu við framtalsgerð.