



H3 áætlun hefur verið í þróun hjá Tölvumiðlun síðan haustið 2009. Kerfið tekur við af H3 excel launaáætlanir sem fjölmörg fyrirtæki hafa tekið í notkun síðan 2009.
Lausnin er hluti af H3 mannauðslausninni, notendum til mikilla þæginda. H3 áætlanir sækir forsendur áætlunarinnar í raungögn úr H3 laun (eða annað launakerfi). Stjórnendur fá aðgang að áætluninni í þægilegu notendaviðmóti þar sem þeir sjá aðeins sinn hóp og geta unnið launaáætlunina að öllu leyti.
Hvernig virkar áætlanakerfið?
Lausnin felst í launaáætlun sem unnin er út frá uppfærðum rauntölum sem sóttar eru með sjálfvirkum hætti í launakerfið. Rauntölur um vinnuframlag hvers mánaðar síðast liðins árs eða annars skilgreinds tímabils eru lesnar inn auk launataxta. Stjórnendur fá aðgang að áætluninni í þægilegu notendaviðmóti þar sem þeir sjá aðeins sinn hóp og geta unnið áætlunina að öllu leyti. Með þessu móti er vinna við forsendur áætlunar lágmörkuð og um leið er yfirsýn aukin. Ráðgjafi frá Tölvumiðlun setur upp töflur, flokkar launaliði og stillir áætlanakerfið miðað við þarfir fyrirtækisins.
Ný virkni
- Með tilkomu H3 áætlana þarf ekki lengur að halda utan um mörg Excel skjöl sem eiga það til að umbreytast milli mismunandi Excel útgáfa og stýrikerfa.
- Nýja lausnin gefur þér mun betri yfirsýn og leyfir einnig að fylgjast með framvindu eftir mánuðum, vikum eða dögum.
- Innan skamms verður viðskiptagreind boðin með áætlanakerfinu. Um er að ræða OLAP tening til að greina áætlaðar tölur á móti rauntölum úr launakerfinu.
Ný tækni
Í H3 áætlun er notast við nýjan biðlara (e. client) sem kallast H3+ og er notast við .NET tækni. Uppsetning kerfisins er mjög einföld.
Þrjú einföld skref
- Sá sem hefur yfirumsjón með áætlanagerðinni hjá fyrirtækinu sækir gögnin í áætlunina og setur upp forsendur fyrir hækkunum
- Deildarstjórar/Sviðstjórar eða þeir aðrir sem sjá um áætlanagerðina skrá inn breytingar fyrir sína hópa.
- Þegar heildaráætlunina liggur fyrir og er samþykkt er bókhaldsblaði eða textaskrá til innlestrar skilað til bókara
Forsendur hækkana eru t.d. breytingar samkvæmt kjarasamningum og persónubundnum samningum. Mikill sveigjanleiki er í áætlanakerfinu til að stilla af útreikning.
- Hefur kostnaður vegna yfirvinnu hækkað / lækkað?
- Hvað hafa launatengd gjöld hækkað mikið milli ára?
- Hvaða hækkanir hafa nýir kjarasamningarnir í för með sér?
- Hvaða áhrif hefur hækkun tryggingagjalds?
- Hver er launakostnaður samanborið við áætlun, í hverjum mánuði fyrir sig?
- Hvað kostar að bæta við stöðugildum og fækka yfirvinnutímum tiltekinna deilda?
Svör við öllum þessum spurningum fást í H3 áætlanir.
Það er líka auðvelt að:
- Skoða samanburð launa og áætlunar í hverjum mánuði, pr. starfsmann.
- Flytja inn ný launagögn í hverjum mánuði.
- Skoða samanburð á milli áætlana í greiningartening.
H3 áætlanir virkar einnig með önnur launakerfi!
Til að nota H3 áætlanir þarf að gera þjónustu- og uppfærslusamning en hann tekur á stofngjaldi miðað við fjölda starfsmanna og hóflegar mánaðarlegar greiðslur fyrir þjónustu og uppfærslur. H3 áætlanir keyrir með H3 laun en einnig önnur launakerfi eins og Microsoft Dynamics NAV, AX, DK og SAP.
Nýtt notendaviðmót
Í H3 áætlun er notast við nýjan biðlara (e. client) sem kallast H3+ og er notast við .NET tækni. Uppsetning kerfisins er mjög einföld. Kerfið uppfærir sig sjálft þegar þess er þörf og gerir litlar kröfur til bandvíddar eða vélbúnaðar. Stjórnendur fá aðgang að áætluninni í þægilegu notendaviðmóti þar sem þeir sjá aðeins sinn hóp og geta unnið áætlunina að öllu leyti.

Áætlanateningur í Excel

Til þess að fá kynningu eða verðtilboð hafðu samband í síma 545 5000 eða sendu okkur fyrirspurn.