Námskeið
Mennt er máttur
Tölvumiðlun leggur metnað sinn í að bjóða fyrirtækjum og stofnunum fjölbreytt úrval námskeiða. Á námskeiðunum er tekið á þeim atriðum sem notendur þurfa að kunna til að fullnýta sér möguleika kerfanna. Í boði eru einkanámskeið, fyrirtækjanámskeið, grunnnámskeið og framhaldsnámskeið í kerfum fyrirtækisins.
Komdu á námskeið!
Með aukinni þjálfun öðlast starfsmenn meira sjálfstraust, kunnáttu og leikni til að meðhöndla launa- og mannauðsvinnslu hjá sínu fyrirtæki. Það er hagur starfsmannsins og þess fyrirtækis sem hann starfar hjá að kerfin séu nýtt til þess að auka hagræði og um leið ná fram vinnusparnaði.
Þau námskeið sem eru í boði hverju sinni er hægt að sjá undir liðnum stundaskrá. Einnig er hægt að lesa sig til um innihald námskeiðsins með því að skoða námskeiðslýsingar.