Enter Title

Minimize

Úttekt á vinnu í launakerfinu

Pantaðu stöðumat

 


H3 laun

H3 laun hafa frá upphafi verið í stöðugri þróun, vinnslan verður sífellt fjölbreyttari og möguleikar í úrvinnslu gagna aukast hratt, sem skilar sér í stöðugri fjölgun viðskiptavina, þetta eru viðskiptavinir með ólíkar þarfir, stórir og smáir.

Reynslan sýnir að einungis lítill hluti notenda nýtir sér kerfið til fullnustu, eru jafnvel að nota það á sama hátt og þegar það var tekið í notkun fyrir mörgum árum síðan.

Að tileinka sér nýjungar eða ný vinnubrögð tekur tíma, en þeim tíma er tvímælalaust vel varið, 10 mínútna vinnusparnaður á dag skilar sér í heilli vinnuviku á ársgrundvelli.
 
Úttekt er þjónusta sem við höfum veitt um nokkurt skeið, hún hefst með stöðufundi hjá viðskiptavini.  Þar er farið yfir það hvernig verið er að vinna í kerfinu, hvort eitthvað vanti upp á skýrslugerð og hvernig innlestri frá öðrum kerfum er háttað svo eitthvað sé nefnt.  Stöðufundurinn er því lykilatriðið í úttektinni, sem þarf að undirbúa mjög vel.

Fjartenging

Úttektin er unnin í fjartengingu í húsakynnum Tölvumiðlunar, þar förum við yfir kerfið í heild sinni og tökum á þeim málum sem upp komu á stöðufundinum.
Að úttekt lokinni er sest niður með viðskiptavininum og farið yfir þá þætti sem betur mega fara og kennt á þá kerfishluta sem ekki eru í notkun, en notandinn vill taka upp.


Öryggi

Öryggismál - Tölvumiðlun leggur mikla áherslu á að öryggismál séu í lagi.  Þegar tengst er fer af stað ferli sem tryggja á öryggi viðskiptavinarins.  Meðan á tengingu stendur eiga samskiptin sér stað með þeim hætti að ekki er hægt fyrir utanaðkomandi aðila að fylgjast með þeim.
 
Fjartenging -  Við notum Bomgar til að tengjast tölvu viðskiptavinar þegar við þurfum að leiðbeina notandanum um ákveðnar vinnslur svo og til að taka stöðuna.   Við tengjumst serverum ef við þurfum að fara í gagnagrunnsvinnslu og yfirferð, á þann hátt verður launafulltrúinn ekki fyrir neinni truflun og getur unnið sína vinnu á meðan.


Text/HTML

Opnunartímar

S. 545 5000

Fax. 545 5001

Tölvumiðlun er opin:
Virka daga frá kl. 09:00 – 17:00.

Lokað er hjá Tölvumiðlun 24. og 31. desember ár hvert.




Ábending / tillaga?

Tölvumiðlun leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum sem allra besta þjónustu.  Við lítum á ábendingar og tillögur sem uppsprettu að frekari árangri. Sendu okkur línu!


Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream